17.5.2007 | 10:24
Feministum boðið upp í dans
Undanfarið hef ég fylgst með bloggsíðum nokkurra femínista hér á moggablogginu og oft er umræðan þar býsna fjörug en misjafnlega málefnaleg. Þar sem ég er ekki vel lesinn í kvenna- og kynjafræðum langar mig að setja fram 10 spurningar um femínisma/jafnréttismál og vonast ég til að femínistar láti ekki á sér standa því ég efast ekki um að þeir hafi svör á reiðum höndum.
Athugasemdakerfið er öllum opið.
- 1. Er feðraveldi til staðar á Íslandi og hver eru áhrif þess í íslensku samfélagi?
- 2. Er femínismi kvennaréttindabarátta eða jafnréttisbarátta?
- 3. Af hverju er eðlilegt að beita femínísku sjónarhorni til að skoða stöðu kynjanna í kynjafræði? Sjá vef háskólans http://www.felags.hi.is/page/kynjafraedi
- 4. Að hve miklu leiti er kynjaslagsíðan í stjórnmálum á ábyrgð kvenna annars vegar og karla hinsvegar?
- 5. Á hvaða sviðum þjóðfélagsins er æskilegt að kynjahlutfallið sé jafnt?
- 6. Hver er helsta ástæða launamunar kynjanna?
- 7. Er lagasetning besta leiðin til að koma á jafnrétti kynjanna?
- 8. Hvernig skilja femínistar hugtökin erotik og pornography - eru skýr skil þar á milli?
- 9. Að hve miklu leiti er vændi á ábyrgð seljanda versus kaupanda?
- 10. Hvernig má bæta réttarstöðu kvenna í nauðgunarmálum?
Svarendum er að sjálfsögðu í sjálfsvald sett hve mörgum spurningum þeir svara og gott væri ef þeir myndu setja númer spurningar fyrir framan svar sitt til glöggvunar fyrir lesendur.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.