Sjómenn bera því gjarnan við að þeir njóti ekki samfélagslegrar þjónustu til jafns við aðra þegna landsins vegna veru sinnar út á sjó þegar rætt er um að fella niður sjómannaafsláttinn.  Sjaldan eru þeir krafðir um rök fyrir þessari fullyrðingu sinni enda eru hún eftiráskýring sem tæplega stenst skoðun.
Helstu útgjöld ríkisins eru vegan heilbrigðisþjónustu og menntamála.  Ég veit ekki betur en að sjómenn njóti heilbrigðisþjónustu jafnt á við aðra.  Að börn þeirra sitji við sama boð og önnur börn þegar kemur að menntun þjóðarinnar.   Að stjórnsýslan sé jafnt í þágu þeirra sem annarra og svo lengi mætti telja.  
Hvaða samfélagslega þjónusta er það sem sjómenn fara á mis við þegar þeir eru út á sjó og réttlætir sérstaka skattaívilnun?  Hvaða samfélagslega þjónusta er það sem aðrar vinnandi stéttir landsins njóta umfram sjómenn á sjó?
Sjómenn svari þessu.
            <description><![CDATA[Það besta sem yfirstandandi heimskreppa gæti leit af sér eru endalok launaveislunnar miklu.  Svallveislu sem staðið hefur árum saman og hófst fyrir mörgum árum í Bandaríkjunum.  Þessir nýju borðsiðir bandarísku forstjóranna voru svo teknir upp handan Atlandsála í Evrópu undir yfirskini alþjóðlegar samkeppni.  Það sama gerðist á Íslandi nokkrum árum síðar. 
Í Evrópu var veislan í raun léleg stæling á þeirri bandarísku þar sem Evrópumenn voru vanir annars konar borðsiðum.  Eitt og annað gleymdist í yfirfærslu nýju siðanna frá Ameríku.  Helst vantaði að þeir sem nutu gætu risið undir herlegheitunum.  Oft var langur vegur þar frá.  En það breytti engu um mikilfengleik veislunnar hvort allt fór í vaskinn eður ei. Show must go on.  Matseðillinn var alla jafnan þríréttaður, en stundum fjórréttaður.  Fyrst komu himinhá föst laun í forrétt.  Því næst bónusar og kaupréttarsamningar í aðalrétt.  Í desert var svo vel útilátinn starfslokasamningur.  Að lokum var svo sumum boðið í koníaksstofuna.  Þar var þeim boðinn ómótstæðilegur eftirlaunasamningur sem endast skildi ævina út, enda ekki leggjandi á þessa menn að spara við sig munaðinn þegar heilsan færi að bresta.
Stjórnir fyrirtækjanna veittu viðurgerninginn ríkulega að eign sögn til að krækja í menn með fáheyrða yfirburði stjórnun og rekstri fyrirtækja.  Samkeppnin um fólk væri mikil.  Um tíma leit út fyrir að þessar skýringar ætti við rök að styðjast, því afkomutölur sumra fyrirtækja náðu áður óþekktum hæðum.  Þó var alltaf eitthvað um menn væru ekki starfi sínu vaxnir.  Þegar þeir voru látnir fara, var hinn ríkulegi starfslokasamningur oft eins og verðlaun fyrir öll axarsköftin sem þeir höfðu framið.
Nú þegar ný og alvarleg fjármálakreppa hefur hellst yfir heimsbyggðina hefur komið í ljós að ekki var til raunveruleg innistæða fyrir öllum ofsagróðanum.  Tap fjárfestingafyrirtækjanna hefur verið gríðarlegt og nokkur þeirra íslensku standa tæpt.  Einhver þeirra hafa orðið að leggja upp laupana.  Snilli snillinganna er komin í bakið á þeim.
Nú er sú krafa uppi í Bandaríkjunum að stjórnendur mikilvægra fjármálastofnanna sem standa tæpt verði látnir víkja án allra starfslokasamninga.  Ríkið taki stofnanirnar yfir til að koma í veg fyrir algjört hrun markaðarins.  Þær verði síðan einkavæddar að nýju þegar holskeflan er gengin yfir og jafnvægi hefur verið komið á.
Sannleikurinn er sá að launaveislan hefur aldrei staðið undir sér.  Forsendur hennar eru blekkingar.  Enginn hefur slíka yfirburði sem hún gefur til kynna.  Hin harða samkeppni um hæfa stjórnendur nær ekki heimálfanna á milli eins og haldið hefur verið fram.  Stjórnendur í Evrópu eru almennt ekki samkeppnisfærir á bandaríkjamarkaði og geta því ekki tekið mið af launum þar.  Það sama gildir um íslenska stjórnendur og erlenda markaði.  Snilli snillinganna er stórlega orðum aukin.  Tala ætti fremur um glanna og glannaskap og hafa launin í samræmi við það.
            <description><![CDATA[Það er einfaldlega fráleitt hjá Viljálmi að hann hafi axlað ábyrgð í REI-málinu.  Hann sagði ekki af sér sem borgarstjóri þegar REI-málið kom upp heldur sleit Björn Ingi samstarfinu.  Vilhjálmur reyndi hvað hann gat til að kjafta sig út úr málinu, þótt ótrúverðugur væri og ætlaði sér að halda áfram sem borgarstóri hvað sem tautaði og raulaði.  Engin ábyrgð öxluð þar heldur var maðurinn einfaldlega settur af þegar meirihlutinn féll.  Í öðru lagi axla menn ekki ábyrgð með því að viðurkenna það sem þeir kalla mistök, já eða tæknileg mistök, þegar þeir í raun gerast sekir um alvarleg afglöp í starfi.
Brjóti menn hegningarlög eru þeir látnir sæta ábyrgð, þar dugar játning engan veginn.  Þegar stjórnmála menn verða uppvísir að afglöpum og ósannsögli eiga þeir að segja af sér, þar dugar játning um mistök engan veginn.
Óskaplega er mönnum orðið umhugað um svokallað götumynd þegar gömul hús eru annars vegar. Húsin eru ljót og því verður götumyndin ljót.  Ef mönnum er virkilega annt um götumyndir þá ættu þeir að vanda sig þegar nýbyggingar eru annars vegar.  Það hefur verulega skort á að tekið sé tillit til byggðar sem fyrir er þegar nýbyggingar eru reistar og það á mun víðar við en bara í miðbænum.  
Þessi hús þarna á laugaveginum eru ágætis efniviður í næstu áramótabrennu!
hvert er þá hlutverk nefndarinnar ef ekki að meta hæfni umsækjanda út frá faglegum forsendum? 
Í hverju felast gallarnir í umsögninni?
Getur það verið að dýralæknir hafi meira vit á hæfni umsækjenda til dómarastarfa en löglærðir menn? 
Það vantar algjörlega skýringu  við þessa frétt.  
Hvers vegna hætti flugvélin við lendingu á Keflavíkurflugvelli? Út af ókyrrð eða hliðarvindi?
Hver eru hámarkshliðarvindur fyrir slíka vél í lendingu?
Var raunveruleg hætta á verðum í þessu tilviki? 
Íslenski bílasalar eru líka ágætir í því að hafa  kaupendur bíla að fíflum með því að verðleggja bílana langt yfir því verði sem eðlilegt getur talist af því að það er svo auðvelt að yfirtaka lánið semá bílnum hvílir.  Svo er það líka til fáranlega langs tíma til þess að mánaðargreiðslan sé ekki of há.  Íslendingurinn spyr nefnilega ekki hvað kostar það, heldur hvað kostar það á mánuði.
Spurning er síðan hvort hægt er að kalla þetta svik. 
Jæja, nú er ég kominn í samkeppni við sjálfan mig í hér á Moggablogginu.  Ég er nefnilega búinn að opna aðra bloggsíðu í Þýskalandi þar sem ég skrifa á þýsku af miklum móð. Þetta er gert til gamans og í æfingaskyni.  Ég keypti mér þýskan prentvillupúka á netinu til þess að halda stafsetningar- og málfræði villum í lágmarki.  Mér gengur bara þokkalega í þessu og er nú þegar búinn að skrifa nokkra pistla.
 Slóðinn á þýskubloggið mitt er:
islaendisch.blog.de
Viel Spaß. 
Þeir sem gripnir eru óstjórnlegri löngun til að taka í gripinn geta gert sér ferð til Berlínar og tekið þátt í svokölluðu Trabbasafarí-i og skoðað í leiðinni "Berlin Wild East."
http://www.visitberlin.de/deutsch/sightseeing/d_si_stadterkundungen_einmal-anders.php
Nú er REI-málið og borgarstjórnarslitin farin að skýrast þannig að nokkuð heilsteypt mynd blasir við.  Þannig er að fólk í pólitík gætir fyrst sinna hagsmuna, síðan flokksins og síðast almennings.  Önnur forgangsröð telst til undantekninga.  Ljóst er að stjórnendur REI gættu vel sinna hagsmuna þegar þeir voru að véla með samruna REI og GGE.  Vildu að sameiningin rynni í gegn eins og þeir höfðu lagt hana upp og höfðu kynningu málsins fyrir sveitasjórnarmönnum álíka upplýsandi og grenndarkynningar eru hafðar í Kópavogi fyrir bæjarbúa.  Ljóst er að borgarstjórinn (bráðum fyrrverandi) höndlaði ekki málið sem skyldi og var einfaldlega of bláeygður gagnvart þeim hráskinnaleik sem var í gangi.  Restin af borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins fannst vera farið á bak við sig þegar gjörningurinn er kynntur fyrir þeim og afleiðingin er sú að þau vantraust skapast milli þeirra og oddvitanna tveggja í borgarstjórn.  Ljóst má vera að einhverjar þreifingar voru að hálfu borgarfulltrúa sjálfstæðisflokksins með myndun nýs meirihluta í borginni sem framsóknarmenn verða áskynja um.  Þar sem Björn Ingi metur samstarfið ekki lengur traust og REI-málið í uppnámi, kýs hann að slíta samstarfinu við sjálfstæðisflokkinn þegar Don Alfredo er búinn að koma nýjum meirihluta í kring í stað þess að eiga það á hættu að sjálfstæðismenn verði fyrri til og hann endi áhrifalítill og einangraður í nýjum minnihluta.
Ahmadinedschad fékk ekki bara fjandsamlegar móttökur í New York um daginn.  Hann var líka boðinn velkomminn af hópi Gyðinga í New York sem buðu honum til fundar á Intercontinental Holtel og fór vel á með þeim eftir því sem ég kemst næst.  Þetta eru strangtrúaðir Gyðingar sem hafa hina mestu skömm á Zíonisma og telja hann í ganga í berhögg við Gyðingdóm eða Judaism.  Að þeirra dómi er Zíonisminn 100 ára gömul stjórnmálastefna sem einkennist af yfirgangi og ofbeldi.
Þetta fer ekki hátt í fréttum og er alveg nýtt fyrir mér að vinskapur og virðing skuli ríkja milli Gyðinga og Múslima.  Vandamálið virðist því ekki vera trúarbrögðin sem slík heldur þær stjórnmálastefnur sem frá trúarbrögðunum eru runnar.  Má þar helstar nefna Íslamisma og Zíonisma.
Hér er svo hlekkur á vefsíðu sem greinir nánar frá fundinum og skoðunum þessara Gyðinga.
http://www.nkusa.org/activities/Meetings/20070924Ahmadinejad.cfm